Nova bloggið


Markaðsmál, Viðburðir

Guðrún Markaðsstjóri

Nova skellti sér á Ljósanótt um helgina

07. september, 2010

Það var líf og fjör í Reykjanesbæ á laugardaginn og Nova lét sig ekki vanta. Hittum fullt af frábæru fólki og gáfum þeim sem vildu flott endurskinsmerki. Alltaf gaman á Ljósanótt!

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá Ljósanótt.

Netið í símann, Símtæki og annar búnaður, Þjónusta og verslanir

Olgeir Verslunarstjóri

Ekkert mál að rata með Nokia!

01. september, 2010

Það er lítil hætta á að þú villist í framandi borgum eða þínum heimabæ með Nokia síma í vasanum. Í Nokia símum er nefnilega að finna Ovi Maps, ókeypis GPS kortagrunn fyrir Nokia síma með innbyggðum GPS móttakara. Sért þú ert ekki viss hvort Nokia síminn þinn styðji Ovi Maps þá getur þú kannað það hér. Með Ovi Maps er hægt að nálgast götukort af yfir 120 löndum um allan heim og ekki spillir fyrir að Ovi maps er með fullkominni raddleiðsögn sem vísar þér veginn. Þú getur líka notað Ovi Maps til að finna áhugaverða staði, söfn, veitingahús og margt fleira sem getur komið sér vel á ferðalögum. Kíktu á okkur í Nova og við sýnum þér hvernig Ovi Maps virkar! Þú getur líka farið á www.ovimaps.is , en þar finnur þú allar milli himins og jarðar um Ovi Maps.

Ovi Maps reddaði þessum klárlega: Myndband

Símtæki og annar búnaður

Hjörtur Innkaupastjóri

Langar þig í nettan Android síma?

30. ágúst, 2010

HTC Wildfire er nettur og öflugur Android sími með góðum snertiskjá, GPS staðsetningartæki og þráðlausu netkorti. HTC Wildfire er í meira lagi félagslyndur sími og er með fullt af skemmtilegum möguleikum, eins og Friend Stream þar sem þú getur skoðað Facebook statusa, Tweets og Flickr myndir á sama tíma og Caller ID sem segir þér ekki aðeins hver er að hringja heldur útvegar þér aðrar upplýsingar eins og afmælisdag og Facebook status þess sem hringir. Þá getur þú sótt fullt af skemmtilegu efni fyrir HTC Wildfire á Android Market.

Facebook, Markaðsmál, Viðburðir

Erla Markaðsfulltrúi

Frábær stemning á Menningarnótt

23. ágúst, 2010

Það var frábær stemning á Menningarnótt núna á laugardaginn, fjölmargir mættu í bæinn og tóku undir með Ingó Veðurguð í Brekkusöng Nova.

Aðrir sem komu fram á stórtónleikunum voru Pollapönk, Dikta, Grafík og Gunni Þórðar og Rokkestra.

Fleiri myndir frá kvöldinu er hægt að sjá á Facebook síðu Nova

Markaðsmál, Símtæki og annar búnaður, Þjónusta og verslanir

Harald Sölustjóri

iPhone 4 er hér!

18. ágúst, 2010

iPhone 4 (16GB) er mættur til Nova. iPhone 4 er í raun lítil nettengd tölva með einstakt notendaviðmót og möguleikarnir á netvöfrun, tölvupósti og afþreyingu eru endalausir. Meðal þess sem iPhone 4 hefur upp á að bjóða er WiFi (þráðlaust net), 5MP myndavél með flashi, GPS staðsetningarkort, HD myndbandsupptaka og MP3 tónlistarspilari. iPhone 4 býður einnig upp á það sem Apple vill kalla FaceTime call, eða myndsímtöl, en síminn hefur myndavél á fram- og afturhlið sem auðveldlega má skipta á milli. Þá er upplausn símans gríðarlega góð, þannig að allir litir njóta sín vel.  Í iPhone 4 getur þú líka haft mörg forrit opin í einu sem auðvelt er að skipta á milli, eitthvað sem ekki var mögulegt í iPhone 3GS. Hönnun iPhone gerir hann síðan gríðarlega flottan! Hjá Nova færð þú iPhone 4 (16GB) á 10.990 kr. á mánuði í 18 mánuði og honum fylgir 1.000 kr. notkun þessa 18 mánuði. Fyrir þá sem vilja staðgreiða kostar iPhone 4  176.990 kr.

Kynnstu iPhone 4 betur

Markaðsmál

Erla Markaðsfulltrúi

Viðskiptavinir Nova fá afslátt á Hamskiptin

16. ágúst, 2010

Viðskiptavinir Nova fá 1.000 kr. afslátt af miðaverði á hinni rómuðu sýningu Hamskiptin, sem snýr nú aftur í Þjóðleikhúsið eftir nokkurt hlé. Í sýningunni er sögð saga sölumannsins Gregor Samsa sem vaknar upp einn morguninn í líki risavaxinnar bjöllu og hvernig Samsa fjölskyldan sogast á svipstundu inn í einkennilega martröð.  

Miðasalan er hafin í Þjóðleikhúsinu og fæst afslátturinn gegn framvísun Nova farsíma.

Gildir á eftirfarandi sýningar:
Föstudagur, 27. ágúst
Laugardagur, 28. ágúst
Sunnudagur, 29. ágúst
Fimmtudagur, 2. september
Föstudagur, 3. september

Nánar um sýninguna hér.

Markaðsmál, Þjónusta og verslanir

Helgi Markaðs & vefmál

Er síðasta útilegan framundan eða fjör í sumarbústaðnum?

13. ágúst, 2010

Ekki klikka á að taka Söngbók Nova með þér, þú færð hana frítt í næstu verslun Nova eða á Nova.is. Meðal laga í nýju söngbókinni eru:  Blister in the sun, Ef ég ætti konu, Lemon Tree og Týnda kynslóðin. Síðan má alltaf grípa með sér söngbókina frá því í fyrra með lögum eins og Barfly, Fjöllin hafa vakað og Lífið er yndislegt, ásamt öðrum frábærum lögum.

Alla textana í söngbókunum getur þú líka fundið á m.nova.is í farsímanum þínum.

Einnig getur þú búið til þína eigin söngbók á Gítargrip.is í samstarfi við Nova. Þar getur þú valið öll uppáhaldslögin þín í söngbókina, með eða án gítargripa, og prentað hana út.

Góða helgi!

Símtæki og annar búnaður, Þjónusta og verslanir

Hjörtur Innkaupastjóri

Þú færð MiFi ferðabox hjá Nova

12. ágúst, 2010

MiFi er einskonar „mini-router“ sem tengist internetinu í gegnum 3G kerfi Nova og myndar þráðlausa tengingu við allt að fimm tæki, s.s. tölvur, farsíma og iPod Touch, samtímis. Hjá Nova getur þú valið um að borga 2.990 kr. á mánuði í 12 mánuði fyrir MiFi, en þá fylgja 5 GB með, eða að staðgreiða tækið á 19.990 kr. Kíktu á okkur í Nova og kynntu þér þessa nettu og frábæru nettengingu.

Nánar um MiFi hér.

Þjónusta og verslanir

Guðný Yfirmaður þjónustuvers

Sjálfvirk áfylling fyrir 3G frelsi og 3G internet

09. ágúst, 2010

Fyrir þá sem eru með 3G frelsi getur sjálfvirk áfylling verið góð lausn, en þá kemur inneign sjálfkrafa inn á símann. Nú geta þeir sem velja sjálfvirka áfyllingu valið um að fá áfyllingu þegar inneign fer undir valda upphæð, frá 100 til 500 kr. Þá hafa þeir sem eru með 3G pungfrelsi  getað verið með sjálfvirka áfyllingu þegar inneign fer undir 250 MB en nú er líka hægt að velja sjálfvirka áfyllingu 1. hvers mánaðar. Sjálfvirk áfylling virkjast um leið og hún er sett á.

Símtæki og annar búnaður, Þjónusta og verslanir

Harald Sölustjóri

Fyll‘ann takk hjá N1!

06. ágúst, 2010

Ef þú ert á ferðinni og klárar inneignina  þá er lítið mál að koma við á næstu N1 þjónustustöð og fylla á frelsið.

Hjá N1 fást nú einnig Nova 3G pungar fyrir þá sem vilja grípa einn með sér á leiðinni út úr bænum og komast í netsamband hvar og hvenær sem er.